
Í febrúarlok og fram í miðjan mars eru skíðafrí í mörgum skólum. Þá er tilvalið að skella sér vestur á firði. Taktu börnin með og kynntu þau fyrir því brekkunum og göngubrautunum fyrir vestan. Þegar því sleppir er alltaf hægt að kynna þau fyrir sjóminjum, snjóflóðavörnum og uppstoppaða ísbirninum í Bolungarvík.
Þriggja nátta gistingu í tveggja manna herbergi með tveimur kvöldverðum. Frítt er fyrir börn í herbergi með foreldrum.
Gisting í þrjár nætur á bilinu 15. febrúar–20. mars. Morgunverður alla morgna og tveir kvöldverðir kr. 25.600.- á mann.
Aukanótt kostar 5.000 á mann, ókeypis fyrir börnin.
Smáa letrið: Gildir ekki með öðrum tilboðum. Gisting er skuldfærð við bókun. Börn þurfa ekki að vera með — tilboðið gildir þó þú sért löngu hætt/ur í skóla.








