Hótel Ísafjörður er þriggja stjarna hótel með 36 tveggja manna herbergjum, þar af er eitt stærra deluxe herbergi. Hótelið er á 5 hæðum, gestaherbergi eru á 2.-5. hæð. Útsýni er yfir Pollinn eða út yfir Ísafjarðardjúp og Snæfjallaströnd. Hótel Ísafjörður er reyklaus staður.
Þjónusta
- Sturta, hárþurrka, sjónvarp og sími eru á hverju herbergi.
- Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn.
- Öryggishólf, þvotta- og hreinsunarþjónusta.
- Háhraða þráðlaus nettenging á öllum herbergjum er innifalin í gistirými. Í anddyri er tölva og prentari fyrir gesti.
- Hægt er að koma fyrir aukarúmi í herbergjum og barnarúmi fyrir ungabörn.
- Tölvu- og ljósritunarþjónusta.
- Lyfta.
- Hjólastólaaðgengi.
- Sérvalin hönnunar- og gjafavara til sölu í gestamóttöku.
- Gestum er heimilt að hafa með sér gæludýr ef þau valda ekki ónæði og ósk um það er gerð við bókun. Gæludýrin eru alltaf á ábyrgð eiganda.
- Veitingasalur opinn allan daginn með úrval af ljúffengum réttum.
- Næg ókeypis bílastæði eru við hótelið.
- Aðstoð við að panta skoðunarferðir, leigubíla og rútur.
- Flugrúta ekur til og frá flugvelli alla daga fyrir flug.
- Boðið er upp á sérstaka þjónustu fyrir brúðhjón
- Tekið er við Visa, Eurocard, JCB, Diners og American Express kortum.
Smáa letrið
Bókað herbergi er til ráðstöfunar frá klukkan 14:00 á komudegi til klukkan 12:00 á brottfarardegi. Afpöntun þarf að berast fyrir kl. 18 daginn fyrir komu. Að öðru leyti er vísað í bókunarreglur Hótels Ísafjarðar.








