Fossavatnstilboð

Með hinni árlegu Fossavatnsgöngu lýkur skíðatímabilinu á Íslandi (og raunar því evrópska líka). Gangan 2012 er haldin 28. apríl. Eftir því sem þessari elstu skíðakeppni landsins vex fiskur um hrygg, fjölgar gestum á Ísafirði frá landinu öllu og víða að úr heiminum. Hörðustu naglarnir ganga 50 kílómetra gönguna, en einnig er í boði 20, 10 og 7 kílómetra göngur fyrir þá sem hafa um annað að hugsa hversdags en að ganga á skíðum.

Við bjóðum því skíðakappa hjartanlega velkomna með sérstöku Fossavatnstilboði í gistingu á Hótel Ísafirði:

Gisting og morgunverður í 3 nætur í eins manns herbergi kr. 34.500.-

Gisting og morgunverður í 3 nætur í tveggja manna  herbergi kr. 42.000.-

Comments are closed.