Dægradvöl

Í bænum sjálfum er margt að sjá t.d. Sjóminjasafnið í Neðstakaupstað og Safnahúsið á Eyrartúni. Skemmtilegt er að ganga um gömlu göturnar þar sem búið er að gera upp fjölda húsa og sagan er alls staðar. Höfnin hefur alltaf aðdráttarafl og margar skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenni bæjarins. Í Ísafjarðarbæ eru 4 sundlaugar og 9 hola golfvöllur í Tungudal. Skemmtilegt er að leigja sér hjól, hjóla um nágrennið, skoða sig um og njóta náttúrunnar.

Flestir gestir fara þó í skipulagðar skoðunarferðir. Vesturferðir bjóða upp á vinsælar bátsferðir út í eyna Vigur, heimsóknir á Hesteyri og gönguferðir á Hornströndum.

North Explorers bjóða upp á styttri ferðir, bæði kajakferðir og gönguferðir, en Borea Adventures lengri ferðir á margfrægri skútu sinni. Innar í Djúpinu býður Ögurfjölskyldan upp á kajakferðir um nágrennið, og aðeins innar í Djúpinu er hægt að fara á kajak- og hestaferðir.

Sumar

Á sumrin er boðið upp á mikið úrval af ýmis konar skoðunarferðum, löngum og stuttum.

Nokkrar ferðaskrifstofur bjóða upp á styttri og lengri ferðir um nágrennið, til dæmis North Explorers, Borea Adventures, Vesturferðir og Ögur Travel. Einna vinsælastar eru siglingarnar í Vigur og Hesteyri. Lengri ferðir eru í boði, flestar í Hornstrandafriðlandinu, svo sem gönguferð milli Aðalvíkur og Hesteyrar og dagsferð til Hornvíkur. Þá er alltaf gaman að keyra um firði, fjöll og firnindi, t.d. að Skrúði, út í Bolungarvík, inn að Kaldalóni og víðar.

Fjaran, sem tengir saman víðerni landsins og regnidjúp hafsins, er ævintýraheimur árið um kring. Kajakferðir njóta vinsælda hér fyrir vestan og lognkyrrir firðirnir eru tilvaldir til kajakferða hvort heldur er fyrir stuttar eða langar ferðir.

Við mælum sérstaklega með 7 göngukortum sem saman þekja allan kjálkann.

Vetur

Á veturna er ísfirskt menningarlíf í miklum blóma m.a. tónlistarviðburðir og fjölbreyttar listsýningar. Vetrarkvöldin eru stjörnubjört, norðurljósin sindra og nálægðin við náttúruna verður mikil. Í skíðalöndum Ísfirðinga er yfirleitt nægur snjór, þó hann vanti annars staðar á landinu, og það er skjólsælt í faðmi blárra fjalla. Á Seljalandsdal eru troðnar upplýstar göngubrautir. Skíðavikan á Ísafirði er árlegur viðburður, í dymbilviku og um páska, þar sem skíðabrekkurnar iða af lífi, bærinn er fullur af fólki og dagskráin svo fjölbreytt að erfitt er að velja úr. Hæst ber þó tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður.

Borea Adventures bjóða upp á vinsælar skútuskíðaferðir á veturna og vorin.

Vor

Á vorin skarta Vestfirðir sínu fegursta. Þegar dagurinn lengist og vorið fer að gægjast upp úr snjónum er skíðaiðkun mikil og ýmis önnur útvist tengd snjónum. Á heiðum í nágrenni Ísafjarðar eru frábær gönguskíðasvæði þar sem eru troðnar göngubrautir langt fram á vor. Fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða fugla þá er fuglalíf á vorin einstaklega fjölbreytt á norðanverðum Vestfjörðum á vorin, t.d. í Skutulsfirði, að Vöðlum í Önundarfirði og í Syðridal í Bolungarvík. Og ekki gleyma skíðaskútuferðunum á Hornströndum.

Haust

Á haustin skrýða haustlitirnir kjarrivaxnar hlíðar fjarða og dala. Þá er tilvalið að fara í kajakferð á firðinum, fara í hjóla- eða gönguferð og tína ber eða sveppi. Í byrjun vetrar er tilvalið að taka snarpan vinnufund fyrir vestan til að undirbúa starfshópinn eða deildina í fyrirtækinu undir átök vetrarins.

Comments are closed.