Á Hótel Ísafirði er stórglæsilegt herbergi á 5. hæð sem hentar sérlega vel fyrir brúðhjón til að verja brúðkaupsnóttinni.
Herbergið rúmgott með setustofu og er með stóru baðherbergi og baðkari. Útsýni úr herberginu er yfir miðbæinn og Ísafjarðardjúp.
Það sem bíður brúðhjónanna á herberginu:
- Satínrúmföt og dúnsængur
- Baðsloppar og inniskór
- Kaffikanna, hárþurrka.
- Kampavín, konfekt og kertaljós.
- Ávextir.
- Morgunverður á herbergi.









