- Gjafabréf frá Hótel Ísafirði -
Sniðug gjöf frá Vestfirðingum og vestfirskum fyrirtækjum til vina, venslamanna og velunnara utan kjálkans.
Fyrir einstaklinga
Þó það sé gaman að fá gesti í heimsókn er kannski óþarfi að teppaleggja íbúðina með rykugum svampdýnum úr bílskúrnum í hvert skipti sem einhver fjarskyldur ættingi er að
millilenda fyrir Hornstrandaferð eða kemur á Skíðavikuna.
Hvort sem vinir og venslafólk koma oft eða aldrei, slær Bréf að vestan tvær flugur í einu höggi.
Það er alþekkt vandamál að ísfirsk heimili eru á álagspunktum, sem eru fjölmargir yfir árið, sneisafull af fólki sem teppaleggur öll gólf með ferðatöskum og rykugum svampdýnunum úr bílskúrnum. Það er nú sök sér að bjóða fólki í mat, en að hafa það yfir páskana með allar skíðagræjurnar, eða yfir sumarið að raða ofan í hornstrandabakpokana reynir oft á þolrif gestgjafanna.
Svo eru það hinir, sem aldrei hafa komið til Vestfjarða. Þeir tala sífellt um það að næsta sumar muni þeir koma, en svo gerist það aldrei. Flestir eru sammála um að það sé alveg bráðnauðsynlegt að þekkja allavega tvo Reykjafirði á Vestfjörðum og vita að Ísafjörður er merkilegt nokk ekki í Ísafirði. En svoleiðis lagað lærir maður ekki nema upplifa sjálfur.
Bréf að vestan er skínandi leið til að koma fólki á fæturna og renna svo sem einn hring um fjórðunginn og kynnast fegurðinni.

Fyrir fyrirtæki
Hver kannast ekki við samtalið sem er um það bil svona: „Já, ég á alltaf eftir að skella mér vestur. Það hefur verið lengi á stefnuskránni en maður verður bara að drífa í því.“
Vestfirsk fyrirtæki geta hvatt til ferðalaga um Vestfirði með því að senda samstarfsfyrirtækjum utan kjálkans Bréf að vestan. Samstarfsfólkið, ekki ósvipað Stellu Löve, drífur svo fjölskylduna með í orlof. Krakkarnir hafa gott af því eins og Stella benti réttilega á, og móttakandi bréfsins getur svo kannski kíkt í kaffi til ykkar í fyrirtækið á meðan krakkarnir eru í sundi á Suðureyri.
Við lögum útlit og innihald Bréfsins að vestan að hverju og einu fyrirtæki.
Einföld og skemmtileg leið til að ganga frá jólagjöfum til stórviðskiptavina á einu bretti. Er til betri auglýsing fyrir Vestfirði en ánægðir gestir og ferðamenn?

Við mælum með
Svefnpoki: Sæludagar á Hótel Ísafirði að sumri
Stundum þarf maður bara að gera ekki neitt. Skildu svefnpokann eftir heima og gistu í vel búnu herbergi á Hótel Ísafirði. Rúmin og aðbúnaðurinn gera það að verkum að hægt er að sofa úr sér alla streitu og stress. Innifalin er gisting í uppábúnum rúmum í tvær nætur, morgunverður báða morgna og þriggja rétta kvöldmáltíð seinna kvöldið. Við þennan pakka er heppilegt að bæta Lundapokanum eða Kaffipokanum og úr verður frábær helgi.
Sælunótt: Tveggja manna herbergi með morgunverði.
Vetur (sep–maí) kr. 13.500.-
Sumar (jún–ágú) kr. 24.500.-
Sæluhelgi: Tveggja manna herbergi í tvær nætur með morgunverði.
Vetur (sep–maí) kr. 26.000.-
Sumar (jún–ágú) kr. 48.000.-
Dekurnótt: Tveggja manna herbergi með morgunverði ásamt þriggja rétta veislukvöldverði fyrir tvo.
Vetur (sep–maí) kr. 26.900.-
Sumar (jún–ágú) kr. 37.900.-
Dekurhelgi: Tveggja manna herbergi í tvær nætur ásamt þriggja rétta óvissukvöldverði fyrir tvo.
Vetur (sep–maí) kr. 39.000.-
Sumar (jún–ágú) kr. 61.000.-
Lúxushelgi: Ef gist í lúxusherberginu okkar bætast við kr. 7.500 á nótt.
En…
…það er alger óþarfi að binda sig við ofangreinda pakka. Sendu okkur línu og við setjum eitthvað saman.
Gjafabréfin gilda út árið 2012. Verðið hér mun breytast þangað til, en gjafabréfin munu að sjálfsögðu gilda fyrir því sem á þeim stendur.
Við Pollinn
Veitingastaðurinn á Hótelinu, Við Pollinn, býður upp á gjafabréf sem henta heimafólki og þegar gjöfin má vera smærri í sniðum. Óvissukvöldverður fyrir tvo — hvernig hljómar það? Jú, eða smurbrauð á aðventunni fyrir ömmu og afa?








