Bókunarreglur

Bókanir

Bókun skal vera skrifleg og skal innihalda eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn farþega sé um einstaklinga að ræða, nafn hóps ef um hóp er að ræða.
  • Komu- og brottfarardag, komutíma ef farþegi kemur seint og flugnúmer eða ferðatilhögun þegar við á.
  • Ef um hóp er að ræða skal tilgreina fjölda,tegund og skiptingu herbergja og tilgreina skal sérstaklega herbergi fyrir leiðsögumann og bílstjóra.
  • Ef um einhverjar séróskir eða sérþjónustu er að ræða eða skal tilgreinda það í pöntun

Staðfesting á bókun

Hótel Ísafjörður skal staðfesta bókun innan 24 tíma sé um virkan dag að ræða. Þar skal tilgreina skiptingu herbergja.

Stöðulisti – nafnalistar fyrir hópa

Stöðulisti skal sendur til Hótels Ísafjarðar 8 vikum fyrir komu hóps. Verði breytingar á fjölda skulu þær tilkynntar tafalaust. Standa skal skil á nafnalista 4 vikum fyrir komu hóps. Breytingar á nafnalista skal tilkynna strax.

Afpantanir og breytingar

Afpantanir fyrir hópa

Afpantanir fyrir hópa skulu berast skriflega, með faxi eða í tölvupósti 8 vikum fyrir komu. Staðfesting er einungis gild ef hún er endurstaðfest af Hótel Ísafirði. Ef afbókað er með minna en 8 vikna fyrirvara, og ekki er um annað samið, má innheimta afpöntunargjald.

  • 4-8 vikum fyrir komu hóps er hóteli heimilt að innheimta 10% af heildarverði
  • 2-4 vikum fyrir komu hóps er hóteli heimilt að innheimta 50 % af heildarverði
  • 2 vikum eða skemur, getur hótel krafist 80% af heildarverði pöntunar eða a.m.k. 1 náttar gistingu fyrir hópinn. Þetta á einnig við ef hópur mætir ekki.

Breytingar á hópabókun

Heimilt er að minnka hópabókun einu sinni.

  • 4-8 vikum fyrir komu hóps ekki meira en 30% af hópi
  • 1-4 vikum fyrir komu hóps ekki meira en 10% af hópi

Ef fækkun er meiri en tilgreint er hér að gilda afpönuntunarreglur.

Bókanir einstaklinga

Afbókanir vegna einstaklingsbókana skulu berast eigi síðar en kl. 6 síðdegis daginn fyrir komu. Berist hún síðar skal greiða eina gistinótt.

Greiðslur

Staðfestingargjald

Hótel Ísafjörður getur krafist 10% fyrirframgreiðslu af heildargistireikningi hóps þegar meira en 8 vikur eru til komu.

Uppgjör og greiðsla reikninga

Verð miðast við staðgreiðslu nema um annað hafi verið samið.

Skyldur Hótels Ísafjarðar

Herbergi tiltæk

Bókað herbergi skal vera til ráðstöfunar frá kl.14:00 á komudegi til kl.12:00 á brottfarardegi. Hótelið áskilur sér rétt til að ráðstafa fráteknum herbergjum eftir kl.18:00 á komudegi nema vitað sé að gestirnir komi seinna.

Þegar hótelið getur ekki séð gestum fyrir herbergjum

Geti hótelið af utanaðkomandi ástæðum og í undantekningartilvikum ekki séð gestum sínum fyrir umsömdum herbergjum skal það sjá þeim fyrir jafngóðum eða betri herbergjum án aukakostnaðar. Þetta skal þó aldrei gert nema að höfðu samráði við þann sem bókar.

Neyðartilvik

Geti Hótel Ísafjörður ekki staðið við skuldbindingar sínar vegna neyðartilvika „force majeure“ þ.e. verkfalla, verkbanna, eldsvoða eða annarra þeirra tilvika er hótelið hefur ekki á valdi sínu, skal það leyst frá þeim skv. þeim reglum er almennt gilda um slík tilvik.

Comments are closed.