slideshow image
Hótel Ísafjörður • Silfurtorg 2 • 400 Ísafjörður • Sími: 456-4111 • Fax: 456-4767 • info@hotelisafjordur.is

Eldri borgarar

Hausttilboð til Ísafjarðar 2010

Boðið verður uppá haustferð fyrir eldri borgara til Ísafjarðar. Ferðin er kjörin fyrir pör eða hópa sem vilja komast í náttúruparadísina á Vestfjörðum og gera sér dagamun í faðmi fjalla blárra. Ferðin verður 20.-23. september.

Gist er á Hótel Ísafirði, í hjarta bæjarins. Hótelið er búið góðum og þægilegum herbergjum með útvarpi, sjónvarpi og kaffisetti. Veitingastaðurinn við Pollinn, á fyrstu hæð hótelsins, er notalegur og þar er boðið upp á ríkulegan morgunverð og góða kvöldverði. Stutt er í alla þjónustu og gaman að spássera um miðbæinn, skoða búðir, rölta niður að höfn eða virða fyrir sér gömlu húsin á Eyrinni sem mörg hafa verið gerð listilega upp. Þeir sem vilja láta dekra frekar við sig geta pantað hársnyrtingu, hand- eða fótsnyrtingu, nudd eða annað á stofum bæjarins.

Dagsetning: Mánudagurinn 20. september til fimmtudagsins 23. september 2010.
Verð á mann: 60.500.- kr miðað við tveggja manna herbergi. 9.000.- kr aukagjald fyrir einstaklingsherbergi.
Lágmark: 10. Ef þú/þið eruð færri endilega verið í sambandi við okkur, það getur verið að fleiri hafi bókað.

Innifalið
  • Flug til og frá Reykjavík
  • Gisting og morgunverður í þægilegum herbergjum á Hótel Ísafirði í þrjár nætur
  • Þrír kvöldverðir á nýuppgerðum veitingastað Hótels Ísafjarðar
  • Akstur til og frá flugvelli á Ísafirði
  • Morgunganga alla morgna fyrir þá sem þess óska
  • Val um að fara í jóga fyrir eldri borgara hjá Mörthu Ernstdóttur 2 morgna
  • Skoðunarferð með leiðsögn um Ísafjörð og Bolungarvík með viðkomu í Einarshúsi, þar sem saga hússins er sögð
  • Skoðunarferð í Safnahúsið á Ísafirði, staðsett í gamla sjúkrahúsinu. Á leiðinni verður kirkjan og altaristaflan „Fuglar himinsins“ skoðuð. Í Safnahúsinu verðu saga hússins rakin. Einnig komið við í Mánagötu 5, sem áður hýsti elliheimili og þar á undan sjúkrahús bæjarins.
  • Heimsókn eldri borgara, tekinn snúningur við harmoníkuspil.
    Eftir kvöldmat verður boðið upp á spilavist eða upplestur úr bókum sem tengjast svæðinu.

Allar nánari upplýsingar og pantanir hjá Hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570-3075.
hopadeild@flugfelag.is