Gjafabréf
-Bréf að vestan-
Fyrir fyrirtæki
Hver kannast ekki við samtalið sem er um það bil svona: „Já, ég á alltaf eftir að skella mér vestur. Það hefur verið lengi á stefnuskránni en maður verður bara að drífa í því.“
Vestfirsk fyrirtæki geta hvatt til ferðalaga um Vestfirði með því að senda samstarfsfyrirtækjum utan kjálkans
Bréf að vestan. Samstarfsfólkið, ekki ósvipað Stellu Löve, drífur svo fjölskylduna með í orlof. Krakkarnir hafa gott af því eins og Stella benti réttilega á, og móttakandi bréfsins getur svo kannski kíkt í kaffi til ykkar í fyrirtækið á meðan krakkarnir eru í sundi á Suðureyri.
Við gefum fyrirtækjum ríflega magnafslætti og lögum útlit og innihald
Bréfsins að vestan að hverju og einu fyrirtæki.
Fyrir einstaklinga
Hvort sem vinir og venslafólk koma oft eða aldrei, slær
Bréf að vestan tvær flugur í einu höggi.
Það er alþekkt vandamál að ísfirsk heimili eru á álagspunktum, sem eru fjölmargir yfir árið, sneisafull af fólki sem teppaleggur öll gólf með ferðatöskum og rykugum svampdýnunum úr bílskúrnum. Það er nú sök sér að bjóða fólki í mat, en að hafa það yfir páskana með allar skíðagræjurnar, eða yfir sumarið að raða ofan í hornstrandabakpokana reynir oft á þolrif gestgjafanna.
Svo eru það hinir, sem aldrei hafa komið til Vestfjarða. Þeir tala sífellt um það að næsta sumar muni þeir koma, en svo gerist það aldrei. Flestir eru sammála um að það sé alveg bráðnauðsynlegt að þekkja allavega tvo Reykjafirði á Vestfjörðum og vita að Ísafjörður er merkilegt nokk ekki í Ísafirði. En svoleiðis lagað lærir maður ekki nema upplifa sjálfur.
Bréf að vestan er skínandi leið til að koma fólki á fæturna og renna svo sem einn hring um fjórðunginn og kynnast fegurðinni.
Vinsælasti pakkinn
Við mælum með
Tveggja nátta gisting: Tvær nætur með morgunverði. Þriggja rétta kvöldverður á veitingastaðnum Við Pollinn.
eða
Gisting og útivera: Gisting í í tveggja manna herbergi með baði, morgunverður af hlaðborði, tveir tveggja rétta kvöldverðir á veitingastaðnum Við Pollinn á Hótel Ísafirði. Aðgangur að sundstöðum í Ísafjarðarbæ og reiðhjól í 1 sólarhring. Auk þess göngukort fyrir Ísafjörð og nágrenni þar sem helstu gönguleiðum í nágrenni bæjarins er lýst.
En...
...það er alger óþarfi að binda sig við ofangreinda pakka.
Sendu okkur línu og við setjum eitthvað saman.
Gjafabréfin gilda út árið 2009. Verðið hér mun breytast þangað til, en gjafabréfin munu að sjálfsögðu gilda fyrir því sem þeim stendur.