Gisting
Hótel Ísafjörður er þriggja stjarna hótel með 36 tveggja manna herbergjum, þar af er eitt stærra deluxe herbergi. Í öllum herbergjum er sturta, hárþurrka, sjónvarp og sími auk þess er háhraða þráðlaus nettenging á öllum herbergjum. Hægt er að koma fyrir aukarúmi í herbergjum og barnarúmi fyrir ungabörn.
Hótelið er á 5 hæðum, gestaherbergi eru á 2.-5. hæð. Útsýni er yfir Pollinn eða út yfir Ísafjarðardjúp og Snæfjallaströnd. Á veturna er boðið upp á svefnpokagistingu.
Hótel Ísafjörður er reyklaus staður.
Þjónusta
• Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn.
• Öryggishólf, þvotta- og hreinsunarþjónusta.
• Þráðlaus nettenging á öllum herbergjum auk tölvu með prentara fyrir gesti í anddyri.
• Tölvu og ljósritunarþjónusta.
• Lyfta.
• Hjólastólaaðgengi.
• Minjagripa og póstkortasala.
• Gestum er heimilt að hafa með sér gæludýr ef þau valda ekki ónæði og ósk um það er gerð við bókun. Gæludýrin eru alltaf á ábyrgð eiganda.
• Veitingasalur opinn allan daginn með úrval af ljúffengum réttum, smáréttum og pizzum.
• Næg ókeypis bílastæði eru við hótelið.
• Aðstoð við að panta skoðunarferðir, leigubíla og rútur.
• Flugrúta ekur til og frá flugvelli alla daga fyrir flug.
• Boðið er upp á
sérstaka þjónustu fyrir brúðhjón.
Ýmislegt
• Tekið er við Visa, Eurocard, JCB, Diners og American Express kortum.
• Bókað herbergi er til ráðstöfunar frá klukkan 14:00 á komudegi til klukkan 12:00 á brottfarardegi.
• Afpöntun þarf að berast fyrir kl. 18 daginn fyrir komu. Að öðru leyti er vísað í
bókunarreglur Hótels Ísafjarðar.