slideshow image
Hótel Ísafjörður • Silfurtorg 2 • 400 Ísafjörður • Sími: 456-4111 • Fax: 456-4767 • info@hotelisafjordur.is

Dægradvöl

Veðursæld er oft mikil á Vestfjörðum og lognið á Ísafirði er ótrúlegt þar sem Eyrin skýlir fyrir vindum af hafi.

Í bænum sjálfum er margt að sjá t.d. Sjóminjasafnið í Neðstakaupstað og Safnahúsið á Eyrartúni. Skemmtilegt er að ganga um gömlu göturnar þar sem búið er að gera upp fjölda húsa og sagan er alls staðar. Höfnin hefur alltaf aðdráttarafl og margar skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenni bæjarins. Í Ísafjarðarbæ eru 4 sundlaugar og 9 holu golfvöllur í Tungudal. Skemmtilegt er að leigja sér hjól, hjóla um nágrennið, skoða sig um og njóta náttúrunnar.

Sjá nánar um skipulagðar skoðunarferðir á www.vesturferdir.is

Sumar:

Á sumrin er boðið upp á mikið úrval af ýmis konar skoðunarferðum, löngum og stuttum. Einna vinsælastar eru siglingarnar í Vigur og Hesteyri, en einnig lengri s.s. til Aðalvíkur og Hornvíkur. Þá er alltaf gaman að keyra um firði, fjöll og firnindi, t.d. að Skrúði, út í Bolungarvík, inn að Kaldalóni og víðar.

Fjaran, sem tengir saman víðerni landsins og regnidjúp hafsins, er ævintýraheimur árið um kring. Kajakferðir njóta vinsælda hér fyrir vestan og lognkyrrir firðirnir eru tilvaldir til kajakferða hvort heldur er fyrir stuttar eða langar ferðir.

Við mælum sérstaklega með 7 nýútkomnum göngukortum sem saman þekja allan kjálkann.

Vetur:

Á veturna er ísfirskt menningarlíf í miklum blóma m.a. tónlistarviðburðir og fjölbreyttar listsýningar. Vetrarkvöldin eru stjörnubjört, norðurljósin sindra og nálægðin við náttúruna verður mikil. Í skíðalöndum Ísfirðinga er yfirleitt nægur snjór, þó hann vanti annars staðar á landinu, og það er skjólsælt í faðmi blárra fjalla. Á Seljalandsdal eru troðnar upplýstar göngubrautir. Skíðavikan á Ísafirði er árlegur viðburður, í dymbilviku og um páska, þar sem skíðabrekkurnar iða af lífi, bærinn er fullur af fólki og dagskráin svo fjölbreytt að erfitt er að velja úr.

Vor:

Á vorin skarta Vestfirðir sínu fegursta. Þegar dagurinn lengist og vorið fer að gægjast upp úr snjónum er skíðaiðkun mikil og ýmis önnur útvist tengd snjónum. Á heiðum í nágrenni Ísafjarðar eru frábær gönguskíðasvæði þar sem eru troðnar göngubrautir langt fram á vor. Hrikaleg fjöll á Vestfjörðum hafa mikið aðdráttarafl og eru vélsleðaferðir og jeppaferðir vinsælar. Fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða fugla þá er fuglalíf á vorin einstaklega fjölbreytt á norðanverðum Vestfjörðum á vorin, t.d. í Skutulsfirði, að Vöðlum í Önundarfirði og í Syðridal í Bolungarvík.

Haust:

Á haustin skrýða haustlitirnir kjarrivaxnar hlíðar fjarða og dala. Þá er tilvalið að fara í kajakferð á firðinum, fara í hjóla- eða gönguferð og tína ber eða sveppi. Í byrjun vetrar er tilvalið að taka snarpan vinnufund fyrir vestan til að undirbúa starfshópinn eða deildina í fyrirtækinu undir átök vetrarins.